Birna
Rún
Leikkona / skemmtikraftur
Næst á sviðBirna bjargar jólunumTjarnarbíó · föstudagur, 27. nóvember
Sýningar

Á fjölunum · Uppistand
Birna bjargar jólunum
Splunkunýtt uppistand sem kemur þér í jólaskap og gefur um leið leyfi til að halda ófullkomin jól.
Tjarnarbíó
- föstudagur, 27. nóvember kl. 20:00
- föstudagur, 4. desember kl. 20:00
- laugardagur, 5. desember kl. 20:00
- föstudagur, 11. desember kl. 20:00
- laugardagur, 12. desember kl. 20:00

Fyrri sýning · 2025 · Uppistand
Bremsulaus
Beitt og ófeimin uppistandssýning um lífið í langtímasambandi með börn, hvatvísar ákvarðanir og skrautleg æskuár. Uppselt á allar sýningar 2025.
Um Birnu
Birna Rún Eiríksdóttir er leikkona og leikstjóri. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2016 og hefur síðan þá leikið á sviði, í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Birna byrjaði ung að leika og aðeins 16 ára lék hún sitt stóra hlutverk í kvikmynd, hlutverkið Gréta í myndinni Órói í leikstjórn Baldvins Z. Birna og Baldvin Z mættust á ný í Netflix þáttaröðinni Réttur 3 árið 2015 og hlaut hún í kjölfarið Edduverðlaunin sem „Besta leikkona í aukahlutverki“ fyrir túlkun sína á Hönnu í þáttunum.
Eftir útskrift tók Birna svo þátt í nokkrum innlendum kvikmyndaverkefnum bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Má þar nefna kvikmyndina Undir trénu, stuttmyndina Frú Regína, þáttaröðina Venjulegt fólk og núna síðast þáttaröðina Jarðarförin mín. Hennar fyrsta erlenda verkefni var kvikmyndin Spell sem frumsýnd var í Los Angeles og í framhaldinu á kvikmyndahátíðum um allan heim.
Eftir útskrift lék Birna í Borgarleikhúsinu og tók þar þátt í mjög ólíkum sýningum eins og samsköpunarverkefninu Natan, dramaverkinu Himnaríki og helvíti og farsanum Sýningin sem klikkar. Síðustu ár hefur Birna einnig leikið með spunahópnum Improv Ísland í Þjóðleikhúsinu. Á sviðinu hefur hún einnig leikstýrt sjálfstæðum sýningum og skólasýningum við frábærar móttökur. Birna er þjálfuð spuna- og grínleikkona með verðlaun á bakinu fyrir dramaleik.
Ferill
Kvikmyndir
- 2018Spell – IngaFyrsta erlenda verkefnið
- 2017Undir trénu
- 2009Órói – GrétaLeikstjóri: Baldvin Z
Sjónvarp
- Jarðarförin mín
- Venjulegt fólk
- 2015Réttur – HannaEdduverðlaunin – besta leikkona í aukahlutverki
Stuttmyndir
- 2018Frú RegínaAðalhlutverk
Leikhús
- 2017Ellý – SigrúnBorgarleikhúsið, söngleikur
- 2017Himnaríki og helvíti – Ragnheiður og ÁlfheiðurBorgarleikhúsið
- 2017Natan – SigríðurBorgarleikhúsið
- 2017Sýningin sem klikkar – Florence CollymoreBorgarleikhúsið
- 2016Improv ÍslandÞjóðleikhúsið, frá 2016
Showreel
Myndir
Í fjölmiðlum
- Birna Rún EiríksdóttirEinkalífið · Hlaðvarp







